Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Rigning með köflum
Mánudagur 16. júní 2008 kl. 07:31

Rigning með köflum

Veðurspá fyrir Faxaflóa:

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Norðaustan 5-13 og rigning með köflum. Norðaustan 10-18 síðdegis og léttir heldur til, hvassast norðantil.

Norðan 3-8 á morgun og léttskýjað. Hiti 8 til 14 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á þriðjudag:

Norðaustan 5-10 m/s. Skúrir norðaustan- og austanlands, en bjartviðri á Suðvestur- og Vesturlandi.

Hiti 6 til 15 stig, hlýjast suðvestantil.

Á miðvikudag:

Norðaustlæg átt og skúrir um landið austanvert og einnig syðst, en yfirleitt léttskýjað um landið vestanvert. Hiti breytist lítið.

Á fimmtudag:

Breytileg eða suðlæg átt, skýjað og dálitlar skúrir en þurrt norðaustantil. Heldur kólnandi.

Á föstudag og laugardag:

Suðlæg átt og vætusamt sunnan- og vestantil. Hiti 6 til 12 stig.

Á sunnudag:

Hæg norðlæg átt, skýjað með köflum og stöku skúrir. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast sunnanlands.

Af: www.vedur.is