Rigning í dag

Vaxandi suðaustanátt, 8-15 með morgninum og rigning, en þurrt norðaustantil fram yfir hádegi. Gengur í suðvestan og vestan 10-18 með skúrum sunnantil síðdegis, en lægir víða fyrir norðan. Vestlæg átt, 8-13 í nótt og skúrir, en hægari norðlæg átt þegar líður á morgundaginn. Hiti 6 til 12 stig, en 2 til 9 stig á morgun.