Rigning eða súld á morgun
Veðurstofan gerir ráð fyrir austlægri átt, 8-15 m/s, hvassast við norðaustur- og austuströndina, en heldur hægari vindur á Vesturlandi. Skýjað að mestu og úrkomulítið, en rigning eða súld sunnan- og austanlands. Suðaustan 5-8 m/s um landið sunnanvert síðdegis á morgun og úrkomuminna. Hiti 3 til 9 stig.