Rigning eða súld á 17. júní
Ljóst er að rigna mun á þjóðhátíðargesti um nær allt land í dag, en Veðurstofan gerir ráð fyrir austlægri átt, víða 5-10 m/s, en hvassari úti við ströndina. Lítilsháttar rigning eða súld sunnanlands, en skýjað með köflum og úrkomulítið norðan til. Suðaustlæg átt, 3-8 m/s og víða skúrir á morgun, en skýjað með köflum og þurrt að kalla norðaustan til. Hiti 7 til 17 stig, svalast með austurströndinni.