Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Rigning eða súld
Fimmtudagur 9. desember 2010 kl. 09:03

Rigning eða súld

Suðvestan 8-13 og rigning eða súld við Faxaflóa í dag en lægir og úrkomulítið um tíma seinnipartinn. Vestlægari á morgun. Hiti 3 til 8 stig.


Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Suðvestan 5-13 og rigning eða súld. Úrkomulítið síðdegis og lægir heldur, en vestan 8-15 og rigning í nótt og á morgun. Hiti 3 til 8 stig.


Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á föstudag:
Vestan 10-18 m/s og rigning, en úrkomulítið austantil síðdegis. Hiti víða 3 til 8 stig.

Á laugardag:
Vestlæg átt, 8-15 m/s, en lægir síðdegis. Skýjað og þurrt að kalla en léttskýjað austantil. Hiti 0 til 6 stig en vægt frost til landsins, einkum austantil.

Á sunnudag og mánudag:
Suðlæg eða breytileg átt og bjart með köflum, en skýjað og úrkomulítið vestantil. Frost 0 til 5 stig, en víða frostlaust við ströndina.

Á þriðjudag og miðvikudag:
Suðvestlæg átt og væta um landið vestanvert, en annars bjartviðri. Frost 0 til 7 stig, en hiti 1 til 5 stig vestantil.