Rigning eða slydda í kvöld
Klukkan 6 var suðvestanátt, víða 3-10 m/s og él á sunnan- og vestanverðu landinu, en annars yfirleitt skýjað með köflum. Hlýjast var 3 stiga hiti á Dalatanga, en kaldast 6 stiga frost við Mývatn.
Veðurhorfur við Faxaflóa næsta sólarhringinn:
Vestan og suðvestan 8-13 m/s. Él, en rigning eða slydda í kvöld. Hvassari og él í nótt, en norðvestan 5-10 síðdegis á morgun. Hiti 0 til 5 stig.
---------- Veðrið 15.03.2007 kl.06 ----------
Reykjavík Úrkoma í grennd
Stykkishólmur Snjóél
Bolungarvík Skýjað
Akureyri Léttskýjað
Egilsst.flugv. Skýjað
Kirkjubæjarkl. Snjóél á síð. klst.
------------------------------------------------
Yfirlit
Um 350 km vestur af Bjargtöngum er víðáttumikil 979 mb lægð, sem þokast A og grynnist.
Veðurhorfur á landinu
Veðurhorfur til kl. 18 á morgun: Suðvestan 5-13 m/s. Él á vestanverðu landinu og dálítil slydda í fyrstu austanlands, en annars skýjað með köflum og yfirleitt þurrt. Rigning eða slydda sunnan og suðvestanlands í kvöld og fram á nótt. Snýst í norðan 5-10 með éljum fyrir norðan seint í nótt og í fyrramálið, en vestlægari syðra. Hiti 0 til 5 stig, en um frostmark norðantil.
VF-mynd/Þorgils: Kaldur morgunn í Reykjanesbæ