Rigning eða skúrir í dag

Veðurhorfur á landinu til kl. 18 á morgun:
Austlæg átt, 8-13 m/s og skúrir eða rigning sunnantil á landinu, annars hægari og skýjað með köflum eða bjartviðri. Fremur hæg austlæg átt á morgun og yfirleitt bjartviðri, en dálítil þokusúld um landið suðvestan- og vestanvert fyrri part dags. Hiti 13 til 20 stig, hlýjast norðanlands, en heldur hlýrra á morgun.