Reynir Katrínar sá hvað myndi gerast hjá Bjarna Harðar
Bjarni Harðarson skrifar á bloggsíðu sína í dag að Reynir Katrínarson hafi séð fyrir það sem myndi gerast í lífi Bjarna nú um miðjan mánuðinn. Bjarni kom við á sýningarbási Reynir á stórsýningunni í íþróttahúsinu í Garði í tilefni af 100 ára afmæli Sveitarfélagsins Garðs. Meðfylgjandi er færsla Bjarna um heimsóknina til Reynis í Garðinum:
http://bjarnihardar.blog.is/blog/bjarnihardar/entry/724587/
„Var í skemmtilegum útvarpsþætti með Bubba Morthens í gærkvöldi og var bara dæmalaust gaman. Eiginlega svo gaman að ég ákvað að láta flakka sögu sem ég hef verið i vafa um að ég ætti að láta hana heyrast í fjölmiðlum. Einhverjir gætu haldið að ég væri orðinn vitlaus en það er nú kannski ekkert til að hafa áhyggjur. Reyndar áreiðanlega einhverjir sem telja hvort er að ég sé vitlaus!¨
Allavega - úr því að ég lét Bubba heyra söguna er ekki nema sanngjarnt að ég setji hana á flot hér á blogginu líka. Þetta snertir skyndilega afsögn mína og ástæður hennar en þremur kvöldum eftir að þá atburði kom konan mín upp i herbergi til mín þar sem ég sat að venju yfir tóbaki og bókum og sagði:
- Manstu þegar við vorum í Garðinum?
- Hvaða garði? Svaraði ég kannski ögn önugur enda aldrei hrifinn af truflunum í mínum bóklestri.
- Suður í Garði,- á sýningunni um daginn og þú hittir spámanninn!
- Já.
- Og manstu hverju hann spáði?
Eftir það kom löng þögn. Elín rifjaði upp spádóminn en ég kom ekki upp orði. Og sannast sagna var ég óvanalega lengi að festa svefn þetta kvöld.
Ég hef alltaf verið laus við að leggja trúnað á miðla og spámenn - en líka forðast svoleiðis fólk eftir mætti. Í þetta skiptið var á ferðinni einstaklega geðugur maður, Reynir Katrínarson, sem bauðst til að kasta upp fyrir mig heiðnum spáflísum, steinum guðanna kallaði hann það, með myndum og rúnum fyrir helstu goð og gyðjur ásatrúarinnar. Og gerði það. Síðan las hann út úr þessum töflum mannlýsingu sem gat svo sem átt við marga en bætti svo við:
- En svo á eitthvað mjög merkilegt og já - alveg rosalegt, eftir að koma fyrir þig í nóvember, nálægt miðjum nóvember. Eitthvað mjög, mjög alvarlegt og dramatískt en það mun verða til góðs þegar upp er staðið. Og það færi að koma í líf mitt nýtt fólk.
Er nema von að mér hafi ekki orðið svefnsamt. Ekki þar fyrir að ég er dulítið forlagatrúar. Hef alltaf verið svag fyrir slíkri trú síðan ég dvaldi ungur með múslimum.
En það hefur aldrei hvarflað að mér að trúa því að nokkur geti í raun og veru lesið þessi forlög. En nú stendur jafnvel það á völtum fótum. Það er flest af manni tekið þessa síðustu og verstu daga!
Reyndar held ég enn að þetta geti kannski verið tilviljun,- já, eiginlega ákveðið að trúa því! Kannski!“.
Mynd af sýningarbás Reynis Katrínar. Þarna sá Reynir fyrir þá hluti sem myndu gerast í lífi Bjarna Harðarsonar og hann skrifar um á bloggi sínu í dag og sagði frá í útvarpsþætti Bubba Morthens í gærkvöldi. Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi Bárðarson