Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Fimmtudagur 13. júlí 2006 kl. 14:39

Reyndu að smygla kókaíni gegnum Leifsstöð

Íslenskt par á þrítugsaldri, sem handtekið var í síðustu viku í Flugstöð Leifs Eiríkssonar með eitt kíló af kókaíni falið í skóm sínum, hefur ekki áður komið við sögu fíkniefnalögreglunnar. www.ruv.is greinir frá þessu í dag.

Fólkið var að koma frá Frankfurt í Þýskalandi. Við húsleit á heimili fólksins á höfuðborgarsvæðinu, fannst að auki eitt kíló af hassi. Mjög fátítt er, nánast einsdæmi, að reynt sé að smygla svo miklu kókaíni um Keflavíkurflugvöll.

Aðrir hafa ekki verið handteknir vegna málsins en rannsókn þess er í fullum gangi. Smyglaranna gæti beðið löng fangelsisvist.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024