Reyndi að stytta sér leið
Starfsmenn í Vaktstöð siglinga og í Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar höfðu í nótt afskipti af skipstjóra á erlendu flutningaskipi sem ætlaði að stytta sér leið og sigla svonefnda innri leið fyrir Garðskaga og inn á Faxaflóann. Frá þessu er greint á visir.is
Stór skip eiga hinsvegar að sigla ytri leiðina samkvæmt reglugerð sem sett var eftir að flutningaskipið Wilson Muga strandaði við Garðskaga fyrir nokrum árum. Skipstjórinn hlýddi fyrirmælum í nótt og beygði út á ytri leiðina.
Innri leiðin freistar hinsvegar sumra skipstjóra, því hún sparar tveggja klukkustunda siglingu.






 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				