Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Reyndi að borða flugmiðann sinn
Laugardagur 16. febrúar 2019 kl. 14:01

Reyndi að borða flugmiðann sinn

- Hefði getað skolað honum niður með Hvannarótarbrennivíni og Vodka

Erlendur ferðalangur sem var að koma frá Dublin og stöðvaður var nýverið í tolli í Flugstöð Leifs Eiríkssonar reyndist vera með mikið af þýfi í fórum sínum úr flugstöðinni og víðar. Lögreglumenn úr flugstöðvardeild handtóku manninn. Honum hafði orðið svo mikið um afskiptin að hann reyndi að borða flugmiðann sinn en kvað það svo hafa verið út af stressi. Hann hafði meðal annars stolið miklu af dýrum ilmvötnum, lýsistöflum, Hvannarótarbrennivíni og vodka, Samsungsíma og vídeotökuvél úr fríhöfninni, samtals að andvirði á fjórða hundrað þúsund króna.
 
Að auki fannst meira þýfi hjá honum sem ekki var úr fríhöfninni og kvaðst hann ekki muna hvar hann hefði stolið því. Hann viðurkenndi sök og var sleppt að skýrslutöku lokinni.
 
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024