Bygg
Bygg

Fréttir

Reykjanesvirkjun: Skipulagsstofnun telur áhrif neikvæð
Þriðjudagur 28. júlí 2009 kl. 13:36

Reykjanesvirkjun: Skipulagsstofnun telur áhrif neikvæð


Í ljósi verndargildis áhrifasvæðis Reykjanesvirkjunar og með hliðsjón af jarðfræðilegri sérstæðni svæðisins og umfangs röskunar, eru samlegðaráhrif núverandi
og fyrirhugaðra framkvæmda verulega neikvæð, með tilliti til landslags, nútímahrauna og verndargildis. Þetta kemur fram í áliti Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum vegna stækkunar á Reykjanesvirkjun.

Skipulagsstofnun segir óumdeilt, í ljósi framlagðra gagna, að yfirborðsvirkni jarðhita við framkvæmdasvæðið hafi aukist verulega eftir að virkjun á Reykjanesi var gangsett 2006. Við það hafi hverasvæðið við Gunnuhver tekið miklum breytingum.

Þá segir í álitinu að gróðureyðing á alls um 11 ha svæði megi rekja til aukinnar yfirborðsvirkni frá því að Reykjanesvirkjun var gangsett og samlegðaráhrif núverandi virkjunar og stækkunar hennar geta verið veruleg neikvæð með tilliti til gróðurs.

„Aftur á móti kunna áhrifin að vera jákvæð fyrir sumar tegundir gróðurs og hugsanlega ferðamenn sem leið eiga um svæðið, verði hverasvæðið gert aðgengilegt á ny´. Aukin yfirborðsvirkni hefur eyðilagt aðstöðu sem búið var að byggja upp fyrir ferðamenn í kringum hverasvæðið við Gunnuhver og takmörkun aðgengis og lokun svæðisins hefur skaðað ferðamennsku á Suðurnesjum mikið. Auk þess getur hávaði, bæði á framkvæmda- og rekstrartíma, haft neikvæð áhrif á upplifun ferðamanna sem fara um svæðið. Með tilliti til áhrifa á ferðaþjónustu og útivist er það mat Skipulagsstofnunar að jarðvarmavirkjun falli illa að svo sérstæðu svæði sem Reykjanes er náttúrufarslega en á náttúrufari þess byggjast vinsældir svæðisins fyrir útivistarfólk og ferðamenn,“ segir í álitinu.

Skipulagsstofnun telur að HS Orka þurfi að standa fyrir vöktun á áhrifum virkjunarinnar á kríu, gróður, lífríki sjávar og fjöru og hitakærar örverur, í samráði við sérfræðiaðila, að því er fram kemur í álitinu.
---

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Ljósmynd/elg - Horft yfir hluta virkjunarsvæðisins og Gunnuhver á Reykjanesi.