Reykjanesið nýtur sín í nýrri herferð
Inspired by Iceland hefur hafið nýja herferð sem kallast A-Ö of Iceland þar sem að land og þjóð eru kynnt með skemmtilegum hætti á Youtube.
Reykjanesið er sá staður þar sem að flestir gestir stíga fyrst fæti á þegar þeir koma til Íslands. Svæðið er fullt af undrum og ekki má gleyma öllum vitunum og vilja þeir að fólk fái að vita allt frá A-Ö um Reykjanesið.
Þetta skemmtilega myndband um Reykjanesið frá Inspired by Iceland má sjá hér fyrir neðan.