Reykjanesið kynnt þátttakendum í loftrýmisgæslu
	Samstarf hefur verið á milli Landhelgisgæslunnar og Markaðsstofu Reykjaness frá því í haust um að kynna Reykjanes og þá þjónustu sem er í boði fyrir þeim einstaklingum sem taka þátt í loftrýmisgæslu á Íslandi og vilja nýta frítíma sinn til þess að skoða svæðið.
	
	Landhelgisgæslan heldur utan um loftrýmisgæslu og loftrýmiseftirlits á Keflavíkurflugvelli og er það verkefni hluti af samþættu verkefni NATO. Um 3-4000 manns, flugmenn, stjórnendur ofl. fylgja þessu verkefni yfir árið. Eftirlitinu er skipt á milli landa innan NATO bandalagsins og búa þessir aðilar á svæðinu í allt að 6 vikur í senn.
	
	Kynningarnar hafa mælst vel fyrir og ljóst að framhald verður á.

 
	
				

 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				