Reykjaneshöfn í miklum vanda
Um 130 milljóna króna afborgun af lánum sem Reykjaneshöfn fékk hjá nokkrum lífeyrissjóðum hefur verið í vanskilum frá 1. maí. Hafnarstjórinn segir í Morgunblaðinu í dag að væntanlega muni lóðagjöld vegna kísilvers og álvers skila höfninni um 500 milljónum á þessu ári. Þá verði hægt að greiða af lánunum. En verði ekki af leigu lóðarinnar til kísilversins gæti tapið hins vegar numið um 500 milljónum á þessu ári. Höfnin skuldar um 5,6 milljarða.
Ljósmynd: Oddgeir Karlsson