Bygg
Bygg

Fréttir

Reykjaneshöfn: 195 milljóna hallarekstur
Mánudagur 3. apríl 2006 kl. 14:25

Reykjaneshöfn: 195 milljóna hallarekstur

Reykjaneshöfn var rekin með 195 milljóna króna halla á síðasta ári. Þetta kom fram á síðasta fundi Atvinnu- og Hafnarráðs Reykjanesbæjar.

Ástæða þessa mikla hallareksturs eru vextir og fjármagnstekjur, að sögn Péturs Jóhannssonar, hafnarstjóra, en auk þess eru afskriftir ársins rúmar 43 milljónir. Þá eru skuldir Reykjaneshafnar um 1900 milljónir. Fyrir utan þá þætti er reksturinn í jafnvægi, og hagnaðurinn er rúm 218 þús., rekstrartekjur og –gjöld eru hvort um sig rúmlega 104 milljónir króna.

Pétur sagði, í samtali við Víkurfréttir, að vonir stæðu til þess að tekjur hafnarinnar færu að aukast með umsvifunum í Helguvík. „Svo vonumst við til þess að fá stóriðju eins og álver á svæðið en það myndi hjálpa okkur að vinna skuldirnar niður.“ Á fundinum gerði formaður ráðsins einmitt grein fyrir þeim viðræðum sem eru í gangi við Norðurál vegna álvers í Helguvík. Rætt hefur verið um hafnar- og lóðarsamning í þeim efnum.

Á fundi ráðsins lagði Brynjar Harðarson fram eftirfarandi bókun: Til að mæta greiðsluerfiðleikum í rekstri Reykjaneshafnar legg ég til að fasteignaskattur af fasteignum innan hafnarsvæða eða samsvarandi upphæð renni til Reykjaneshafnar.

Enginn nefndarmaður setti sig sérstaklega á móti þessari bókun.

Á fundinum kom einnig fram að fjórum aðilum var úthlutað lóðum, í Helguvík, Óskari Péturssyni, Keflvíkingi ehf, Fasteignafélagi Suðurnesja ehf. og OSN Eignarhaldsfélagi.

Loftmynd/Þorgils
Bílakjarninn
Bílakjarninn