Bygg
Bygg

Fréttir

Reykjanesbrautinni lokað - opnuð aftur kl.14
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 4. janúar 2020 kl. 12:50

Reykjanesbrautinni lokað - opnuð aftur kl.14

Reykjanesbraut var lokuð um hádegisbilið í dag vegna óveðurs. Bílar hafa lent í vandræðum í morgun á brautinni vegna slæmra aðstæðna og veðursskilyrða. Fjöldi vega og heiða er lokað vegna óveðursins en djúp lægð gengur nú yfir landið.

Fréttamaður Víkurfrétta er á Keflavíkurflugvelli að fylgjast með gangi mála en nokkur röskun hefur verið á flugumferð. Vélum hefur verið snúið frá í aðflugi, t.d. flugvél British Airways sem fór til London þaðan sem hún var að koma og þá gerði Finnair tilraun til lendingar og náði að lenda í annarri tilraun. Þessar myndir voru teknar úr þjónustubifreið Isavia á Keflavíkurflugvelli um hádegið.

Bílakjarninn
Bílakjarninn