MSS námskeið haust 2026
MSS námskeið haust 2026

Fréttir

Reykjanesbraut: Tilboð opnuð í dag
Þriðjudagur 8. apríl 2008 kl. 09:20

Reykjanesbraut: Tilboð opnuð í dag



Tilboð í útboð Vegagerðarinnar vegna verkloka við tvöföldun Reykjanesbrautar verða opnuð eftir hádegi í dag. Skilafrestur á tilboðum er til kl. 14 og verða tilboð opnuð 15 mínútum síðar.

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Þegar hefur verið samið við verktakafyrirtækið Eykt að ljúka smíði tveggja brúa, en afgang verksins þurfti að bjóða út eftir gjaldþrot Jarðvéla.

Kristján L. Möller, samgönguráðherra, sagði á þingi í gær að stefnt væri að því að Reykjanesbrautin yrði umferðarhæf  fyrir 15. október nk.

Það kom fram í svari hans við fyrirspurn Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur, en á vísi.is er haft eftir henni að hún hafi sagt ástand umferðaröryggismála á Brautinni óásættanlegt. Þar hafi orðið 23 slys á kaflanum frá Vogaafleggjara að Keflavík, og þar af þrjú alvarleg.

Í svari sínu benti ráðherrann á að vegmerkingar hefðu verið settar upp á umræddum spotta. Þar væru vegmerkingar með 50 kílómetra hámarkshraða en þegar hann hefði ekið þar um hefðu margir ekið hraðar en það. Aðalatriðið væri að vegfarendur sýndu varkárni í akstri.

H: www.visir.is

 

Loftmynd/Oddgeir

Bílakjarninn
Bílakjarninn