HSS
HSS

Fréttir

Föstudagur 30. nóvember 2001 kl. 00:26

Reykjanesbraut fjórar akreinar árið 2010?

Skipulagsstofnun fjallar nú um áhrif tvöföldunar Reykjanesbrautar á umhverfið samkvæmt skýrslu sem Hönnun gerði fyrir Vegagerð ríkisins. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist á næsta ári og þeim ljúki árið 2010.Heildarkostnaður er áætlaður 3 til 3,5 miljarður króna. Reykjanesbraut verður breikkuð úr 2 akreinum í 4 á 24 kílómetra kafla á milli Hafnarfjarðar og Reykjanesbæjar. Í raun er verið að tala um nýjan tveggja akreina veg við hliðina á þeim gamla. Fimm vegamót á leiðinni verða öll mislæg. Umferð hjólreiðamanna verður bönnuð á Reykjanesbraut og beint á aðra vegi. Það eykur öryggi en lengir leið hjólafólks um 3 kílómetra.
Frá þessu er greint á Textavarpinu.
Bílakjarninn
Bílakjarninn