Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

  • Reykjanesbær vill taka yfir rekstur heilsugæslunnar af ríkinu
  • Reykjanesbær vill taka yfir rekstur heilsugæslunnar af ríkinu
Fimmtudagur 24. apríl 2014 kl. 12:08

Reykjanesbær vill taka yfir rekstur heilsugæslunnar af ríkinu

Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, lýsti því yfir á íbúafundi í Njarðvíkurskóla í gær að hann teldi mikilvægt að bærinn tæki yfir heilsugæsluna af ríkinu og kæmi að stjórnun Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.

„Við höfum byggt upp góða menntun og breytt viðhorfi til menntunar í Reykjanesbæ. Við höfum umbylt umhverfisásýnd bæjarins og gert vönduðustu þjónustumiðju landsins í þágu aldraðra íbúa. Við höfum byggt á tónlistarhefð, byggt tónlistar- og ráðstefnumiðstöð og lagt grunn að vel launuðum og fjölbreyttum störfum fyrir alla íbúa. Eigum við ekki að vinna á sama hátt með heilbrigðisþjónustuna og færa hana frá ríkinu? spurði Árni.

„Af ellefu þáttum sem tilheyra fyrirmyndarsveitarfélagi hefur ríkið m.a fulla stjórn yfir lögreglu og heilbrigðisþjónustu. Lögreglan sinnir sínu hlutverki mjög vel hér á Suðurnesjum en við þurfum að styrkja heilsugæsluna og heilbrigðisþjónustuna. Við byggjum aðeins gott samfélag hér ef þessir
þættir eru í lagi. Við viljum að aðstaða íbúa í þessum efnum sé til fyrirmyndar og við getum gert hana þannig ef við fáum einhverju ráðið“ sagði Árni.

„Ég vil að við bjóðumst til að taka yfir heilsugæsluna frá ríkinu og koma einnig að stjórnun Heilbrigðisstofnunar“.

Á fundinum kom fram að hann hafi átt fyrstu viðræður við heilbrigðisráðherra sem vilji gjarnan ræða hlutverk sveitarfélaga í stjórn heilsugæslunnar og aðkomu þeirra að stjórnum sjúkrastofnana á landsbyggðinni.

Public deli
Public deli