Reykjanesbær veikti krónuna
Uppgreiðsla Reykjanesbæjar á erlendu láni að upphæð 800 milljónir króna í framhaldi af sölu á svokölluðu Magma bréfi er einn af þáttum sem hafa haft áhrif á veikingu krónunnar að undanförnu mati sérfræðinga.
Þetta kemur fram í viðtali við hagfræðing hjá Íslandsbanka á visir.is en krónan hefur veikst um 6% á einum mánuði. Þann 10. ágúst kostaði evran 146 kr. en í dag um 157 kr.