Reykjanesbær úthlutar 130 einbýlishúsalóðum: Fyrstur kemur, fyrstur fær

Allt gatnakerfi svæðisins er byggt upp sem húsagötur og aðalinnkoma að hverfinu er frá Njarðarbraut um nýtt hringtorg. Gata liggur gegnum hverfið frá Njarðarbraut að Grænásvegi. Aðrar götur ganga út frá henni til norðurs og suðurs og tengist efsta gatan inn á núveraandi Vallarás. Almennt eru lóðir um 750m2 að stærð.
Í útjaðri svæðisins eru leik- og útivistarsvæði sem umlykja byggðina. Þar eru bæði sparkvellir og leiksvæði sem tengjast saman við göngustíg. Gert er ráð fyrir tveimur bílastæðum á lóð.
Umsóknareyðiblöð liggja frammi á skrifstofu Umhverfis- og skipulagssviði á Tjarnargötu 12, einnig á upplýsingavef Reykjanesbæjar reykjanesbaer.is
Með umsóknum þarf að fylgja staðfesting banka eða lánastofnunar á greiðsluhæfni umsækjanda á 18 milljónum króna.