Reykjanesbær úr keppni í Útsvari
Þátttöku Reyknesinga í spurningakeppni sjónvarpsins, Útsvari, lauk á föstudaginn með tapi gegn Akureyringum. Akureyringar náðu ágætri forystu eftir leikinn góða en Suðurnesjamenn söxuðu töluvert á það í flokkunum og var ansi jafnt með liðunum um tíma. Það var þó ekki nóg og eftir því sem leið á náði lið Akureyrar aftur forystu og unnu að lokum með 92 stigum gegn 58 stigum Reykjanesbæjar.
Fulltrúar Reykjanesbæjar þau Baldur Guðmundsson, Hulda G. Geirsdóttir og Theodór Kjartansson hafa staðið sig með mikilli prýði í baráttunni og hafa sýnt það og sannað með skemmtilegri en jafnframt háttvísri framkomu sinni að þau eru verðugir fulltrúar Reykjanesbæjar, fyrir utan það að þau sigruðu tvisvar í sínum riðlum. Íbúar Reykjanesbæjar eru stoltir af sínu liði og við þökkum þeim kærlega fyrir frábæra frammistöðu.
Mynd: rnb.is