Reykjanesbær: Unnið að endurskoðun deiliskipulags

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar stofnaði stýrihóp um aðalskipulagsvinnuna sem starfar með ráðgjöfunum. Stýrihópinn skipa: Árni Sigfússon, bæjarstjóri, formaður, Steinþór Jónsson, formaður umhverfis– og skipulagsráðs og Eysteinn Jónsson, fulltrúi í bæjarráði. Með hópnum starfa Sigríður Jóna Jóhannesdóttir, tæknifulltrúi, Umhverfis-og skipulagssviði og Sveinn Númi Vilhjálmsson, bæjarverkfræðingur.
Nú er unnið að Áfangaskýrslu 1: Leiðarljós, forsendur og skipulagsáherslur, þar sem fjallað er um helstu forsendur og skipulagsmarkmið fyrir endurskoðun Aðalskipulags Reykjanesbæjar 2006 – 2021.
Stefnt er að opnum íbúafundi um forsendur og markmið aðalskipulagsendurskoðunarinnar í september n.k., til að fá fram hugmyndir, sjónarmið og ábendingar frá íbúum bæjarfélagsins á fyrstu stigum vinnunnar.
Af vefsíðu Reykjanesbæjar