Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Reykjanesbær tók tilboði Grant Thornton
Föstudagur 8. júlí 2016 kl. 06:00

Reykjanesbær tók tilboði Grant Thornton

- Átti lægsta tilboðið í útboði

Bæjarráð Reykjanesbæjar samþykkti í morgun að taka tilboði Grant Thornton endurskoðunar ehf. í endurskoðun fyrir Reykjanesbæ, Reykjaneshöfn og Fasteignir Reykjanesbæjar á grundvelli niðurstöðu örútboðs. Ríkiskaup framkvæmdi útboðið fyrir Reykjanesbæ sem gerði kröfu um að sá endurskoðandi sem stjórnaði verkinu myndi falla í A- flokk samkvæmt Rammasamningi ríkisins og krafist var reynslu af sambærilegum verkefnum. Grant Thornton var með lægsta tilboðið af þeim fyrirtækjum sem sendu inn tilboð og stóðust kröfulýsingu. Stefnt er að undirskrift samnings að loknum 10 daga biðtíma. Alls buðu sex fyrirtæki í verkið.

Á vef Reykjanesbæjar er haft eftir Jóni Inga Benediktssyni, innkaupastjóra Reykjanesbæjar, að fjárhagslegur ávinningur örútboðs á endurskoðun fyrir Reykjanesbæ, Reykjaneshöfn og Fasteignir Reykjanesbæjar nemi tæplega 20 milljónum króna.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024