Reykjanesbær tekur til í sorpmálum
Skipa starfshóp til þess að auka sorpflokkun og endurvinnslu
Skipaður hefur verið starfshópur sem hefur það verkefni að gera tillögu að aðgerðaáætlun um það hvernig Reykjanesbær getur auðveldað íbúum og fyrirtækum bæjarins að auka sorpflokkun og endurvinnslu frá því sem nú er. Markmiðið er að koma sorpflokkun og endurvinnslu í takt við nútímann.
Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar hefur skipað þau Eystein Eyjólfsson, Magneu Guðmundsdóttir og Berglindi Ásgeirsdóttir í starfshópinn. Verkefnið verður unnið í samvinnu og samstarfi við hin sveitarfélögin á Suðurnesjum og Kölku. Aðgerðaáætlun verður síðan lögð fyrir ráðið og bæjarstjórnar til samþykktar.