Bygg
Bygg

Fréttir

Reykjanesbær tapað 1,6 milljörðum vegna félagslegs húsnæðis
Friðjón Einarsson, bæjarfulltrúi og formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar.
Miðvikudagur 21. júní 2017 kl. 12:09

Reykjanesbær tapað 1,6 milljörðum vegna félagslegs húsnæðis

Félagið Fasteignir Reykjanesbæjar ehf. hefur verið rekið með miklu tapi frá stofnun þess árið 2002 og nemur uppsafnað tap nú rúmlega 1,6 milljörðum króna. Frá þessu greindi Friðjón Einarsson, bæjarfulltrúi og formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar, á bæjarstjórnarfundi í gær.

 

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Fasteignir Reykjanesbæjar ehf. eru í eigu Reykjanesbæjar og telst til b-hluta stofnana sveitarfélagsins. Félagið á og rekur um 240 íbúðir til afnota fyrir fjölskyldur og einstaklinga, sem ekki geta séð sér fyrir húsnæði vegna félagslegra aðstæðna, sem og fyrir aldraða.

 

Löggiltir endurskoðendur félagsins hafa ítrekað bent á rekstrarvanda félagsins en ljóst er að við óbreyttar forsendur muni rekstur félagsins hvorki geta staðið undir afborgunum lána né eðlilegu viðhaldi hússins. Leiguverð félagsins hefur í mörgum tilfellum verið afar lágt, eða allt frá 800 krónum á fermetra. Jafnframt er mikill munur á leiguverði á milli íbúða innan félagsins og nemur sá munur rúmlega 40% þar sem bilið er mest.