Bygg
Bygg

Fréttir

Reykjanesbær styrkir Grænlendinga um 200 þúsund
Fimmtudagur 6. júlí 2017 kl. 16:31

Reykjanesbær styrkir Grænlendinga um 200 þúsund

Bæjarráð Reykjanesbæjar samþykkti á fundi sínum í morgun að styrkja landssöfnunina „Vinátta í verki“ vegna hamfaranna í Grænlandi um 200.000 krónur. Flóðbylgja skall á grænlenska þorpið Nuugaatsiaq með þeim afleiðingum að fjórir fórust og ellefu hús eyðilögðust.

Hrafn Jökulsson, talsmaður söfnunarinnar, hefur á undanförnum vikum leitað til sveitarfélaga og hvatt þau til að styrkja ef mögulegt sé. Sveitarfélögin á Suðurnesjum eru farin að bregðast við, en fyrr í dag greindum við frá því að Grindvíkingar hefðu einnig styrkt Grænlendinga.

Bílakjarninn
Bílakjarninn