Reykjanesbær opnar þjónustuver
Unnið er að því að koma upp nýju þjónustuveri Reykjanesbæjar sem opnar nú um mánaðamótin. Bæjarskriftofurnar verða lokaðar af þeim sökum næstkomandi föstudag.
Þjónustuverinu er ætlað að færa þjónustu bæjarins nær íbúum og viðskiptavinum og er boðið upp á ólíkar leiðir til að nálgast hana. Opnunartími á bæjarskrifstofum hefur verið aukinn og verður nú opin mánudaga - fimmtudaga frá kl. 8:30 - 16:00 og föstudaga frá 8:30 - 15:00.
Í þjónustuverinu fást upplýsingar um alla starfsemi og þjónustu bæjarins og þar fer meðal annars fram símsvörun, öll almenn þjónusta við viðskiptavini bæjarins og upplýsingagjöf um stöðu mála og erinda.
Í þjónustuverinu verður tekið á móti umsóknum og hægt verður að fá teikningar af fasteignum. Þjónustuverið svarar meðal annars spurningum um húsaleigubætur, gjaldskrá, hvatagreiðslur, umönnunargreiðslur, fundagerðir bæjarstjórnar og nefnda, íbúavefinn mittreykjanes.is og leiðbeinir hvernig hægt er að nálgast upplýsingar á vef bæjarins. Þjónustuverið sér einnig um íbúaskráningar og viðtalsbókanir hjá fjölskyldu- og félagssviði.