Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Reykjanesbær opnar
Þriðjudagur 13. maí 2003 kl. 12:47

Reykjanesbær opnar

Laugardaginn 10. maí var upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn opnuð formlega í Kjarna, Hafnargötu 57, Reykjanesbæ. Miðstöðin verður landshlutamiðstöð fyrir Reykjanesið og rekin af Reykjanesbæ í samstarfi við Ferðamálaráð Íslands. Upplýsingamiðstöð Reykjaness verður staðsett í húsnæði Bókasafns Reykjanesbæjar í Kjarna. Upplýsingamiðstöðin verður opin virka daga frá kl. 10-20 og á laugardögum kl. 10-16.
Þjónustusvæði hennar er Reykjanesið og helstu verkefni eru að annast upplýsingastarf um ferðamál á svæðinu, hafa aðgengilegar allar upplýsingar um þjónustu og viðburði á svæðinu og svæðið sjálft, svara almennum fyrirspurnum um viðkomandi svæði eða vísa á rétta aðila og hafa á boðstólum bæklinga um svæðið og þá þjónustu sem þar er í boði ásamt helstu heildarbæklingum fyrir landið.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024