Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Reykjanesbær opnaði bókhaldið sitt í dag
Á mynd eru f.v. Hallgrímur Arnarson frá KPMG, Hafdís Sandholt frá KPMG, Hjörtur Harðarson hagdeild Reykjanesbæjar og Helga María Finnbjörnsdóttir hagdeild Reykjanesbæjar.
Föstudagur 1. september 2017 kl. 15:46

Reykjanesbær opnaði bókhaldið sitt í dag

- Taka skrefi í átt til framtíðar

Í dag steig Reykjanesbær stórt skref í inn í framtíðina og opnaði bókhald bæjarins á heimasíðu Reykjanesbæjar.

Hægt er að skoða tekju og gjaldaliði alveg niður í einstaka birgja gegnum vef Reykjanesbæjar frá og með deginum í dag. Nú er fyrsti ársfjórðungur ársins 2017 aðgengilegur í Opna bókhaldinu og allt árið 2016. Ársfjórðungum verður bætt við um leið og árshlutauppgjör hefur verið sent til Kauphallar í samræmi við reglur um útgáfu skuldabréfa.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

 

Helga María Finnbjörnsdóttir viðskiptafræðingur í hagdeild Reykjanesbæjar segir markmiðið með opnun bókhaldsins vera það að gera fjárhagsupplýsingar aðgengilegar bæjarbúum og öðrum áhugasömum. Einnig að skýra frá ráðstöfun opinberra fjármuna sveitarfélagsins. „Stjórnendur Reykjanesbæjar hafa fundið fyrir auknum áhugaá rekstri bæjarfélagsins og gagnsæi í meðferð fjármuna. Þetta er skref í því að svara því kalli.“

Við hönnun og uppsetningu Opna bókhaldsins hefur sérstök áhersla verið lögð á skýrt, einfalt og notendavænt viðmót þannig að ekki sé þörf á mikilli fjármálaþekkingu til að afla sér gagnlegra upplýsinga. Helga segir kostina við opnun bókhaldsins vera skýra. „Kostirnir  við gagnsæi af þessum toga eru margvíslegir. Með auknu aðgengi að upplýsingum og aðhaldi íbúa mun umræða verða upplýstari, ákvarðanataka betri og lýðræðisþátttaka aukast."

 

Opna bókhaldinu er skipt í tvo hluta; tekjur og gjöld. Tekjur eru brotnar niður á málaflokka, þjónustuþætti og einstaka tekjuliði og hægt er að skoða heildartekjur valinna tímabila. Niðurbrot gjalda er sambærilegt en þar er einnig hægt að skoða niðurbrot niður á einstaka birgja.