Reykjanesbær og Sólar undirrita þjónustusamning
Sólar ehf. var hagstæðast í útboði á ræstingum sem Reykjanesbær bauð út. Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar og Einar Hannesson framkvæmdastjóri Sólar ehf. undirrituðu 14. apríl þjónustusamning vegna ræstingar á samtals 12 leikskólum og stofnunum Reykjanesbæjar.
Samningurinn gildir í fjögur ár með möguleika á framlengingu um allt að tvö ár. Sólar ehf. mun hefjast handa við framkvæmd samningsins frá og með 1. júní 2023.
Sólar hefur síðastliðin 20 ár þjónustað viðskiptavini sína, þar á meðal leikskóla og stofnanir þegar kemur að almennum þrifum og sérþrifum. Hjá fyrirtækinu starfa um 450 starfsmenn en frá upphafi hefur starfsmannastefna verið byggð á jákvæðri endurgjöf, virðingu og góðum starfsanda. Sólar er leiðandi í umhverfisvernd og vara fyrst ræstingafyrirtækja hér á landi til að fá leyfi til að nota Svaninn, norræna umhverfismerkið. Sólar hefur tíu ár í röð verið í hópi Framúrskarandi fyrirtækja Creditinfo.