Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Reykjanesbær má nota nafnið Vatnaveröld
Fimmtudagur 8. október 2009 kl. 12:46

Reykjanesbær má nota nafnið Vatnaveröld


Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur staðfest ákvörðun Neytendastofu um að banna ekki Reykjanesbæ að nota heitið Vatnaveröld á sundmiðstöð bæjarins. 
Gæludýraverslunin Vatnaveröld kvartaði til Neytendastofu yfir notkun Reykjanesbæjar á heitinu þar sem mikill ruglingur skapaðist milli þeirra. Gæludýraversluninni bærust t.a.m. símtöl með fyrirspurnum um opnunartíma og óskilamuni. Þar sem aðilarnir eru ekki keppinautar á markaði taldi Neytendastofa notkun Reykjanesbæjar á heitinu ekki valda hættu á því að neytendur rugluðust á fyrirtækjunum eða kæmu til með að eiga viðskipti við rangan aðila.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024