Atnorth
Atnorth

Fréttir

Reykjanesbær lá gegn Reykjavík
Útvarslið Reykjanesbæjar 2014-2015 komst í 8 liða úrslit en mátti þola tap gegn Reykjavík og er því dottið út úr keppninni.
Mánudagur 30. mars 2015 kl. 09:44

Reykjanesbær lá gegn Reykjavík

Reykjanesbær tapaði fyri Reykjavík í 8 liða úrslitum í spurningaþættinum Útsvari á RÚV sl. föstudagskvöld og er því dottið út úr keppninni. Suðurnesjamenn náðu sér ekki á strik í þessari viðureign og máttu þola tap gegn liði sem þeir rúlluðu yfir í haust.

Baldur Guðmundsson sem verið hefur í liðinu mörg undanfarin ár gaf það út eftir þáttinn að þetta væri orðið fínt og þetta væri hans síðasti þáttur í Útsvari. Þáttarstjórnendurnir Þóra og Sigmar tóku hins vegar ekki mikið undir það. Með Baldri voru þau Guðrún Ösp Guðmundsdóttir og Grétar Sigurðsson.

Bílakjarninn frá sept. 25
Bílakjarninn frá sept. 25
Safnahelgi 2025
Safnahelgi 2025