HSS sumarstörf 14-21 mars
HSS sumarstörf 14-21 mars

Fréttir

Reykjanesbær kominn undir skuldaviðmið
Miðvikudagur 17. apríl 2019 kl. 12:26

Reykjanesbær kominn undir skuldaviðmið

Reykjanesbær er kominn undir 150% lögbundið skuldaviðmið en rekstrarniðurstaða samstæðu nemur 2,3 milljörðum króna. Tekjur jukust á árinu 2018 um 11% og rekstrarniðurstaða bæjarfélagsins er sú besta í sögu þess. 
 
„Ársreikningur Reykjanesbæjar staðfestir að sveitarfélagið er á góðri leið með að ná þeim fjárhagslegu markmiðum sem stefnt hefur verið að undanfarin ár. Niðurstaðan er mjög hagfelld og staðfestir að sú leið sem ákveðin var í Sókninni var hin rétta leið,“ segir í bókun meirihluta bæjarstjórnar Reykjanesbæjar sem lögð var fram á bæjarstjórnarfundi 16. apríl 2019.
 
Tekjur bæjarsjóðs héldu áfram að vaxa og voru 15,6 milljarðar, samborið við 14,4 milljarða á árinu 2017 og jukust því um tæp 11 prósent á milli ára. Rekstrartekjur samstæðu voru skv. ársreikningi 23,2 milljarðar.
 
Rekstrargjöld bæjarsjóðs voru 12,1 milljarður samanborið við 11,7 milljarða útgjöld á árinu 2017 og nemur hækkun gjalda tæpum 4% milli ára. Rekstrargjöld samstæðu voru skv. ársreikningi 16,6 milljarðar. Heildarskuldir og skuldbindingar samstæðu námu um 48,5 milljörðum króna og í efnahagsreikningi  bæjarsjóðs voru skuldir og skuldbindingar 29,1 milljarður króna í árslok 2018.
 
Rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs fyrir afskriftir og fjármagnsliði var jákvæð um 3,5 milljarða króna en að teknu tilliti til þeirra er rekstrarniðurstaða jákvæð um 2,6 milljarða.
 
Heildarskuldir og skuldbindingar samstæðu eru 48,6 milljarðar og skuldaviðmið er komið niður fyrir 150% viðmiðið og var 137,29% í árslok 2018. Sveitarfélagið er því samkvæmt nýrri aðferð um útreiknings skuldaviðmiðs búið að ná undir 150% lögbundið skuldaviðmið. 
 
Það má þó gera ráð fyrir að skuldaviðmið hækki tímabundið þegar uppsöfnuðu handbæru fé verður ráðstafað til byggingar Stapaskóla. Í árslok 2018 ríkir áfram óvissa um endanlegt virði langtímakröfu Reykjanesbæjar í Fagfjárfestingasjóðnum ORK sem heldur á hlutabréfum í HS Orku. Það má þó gera ráð fyrir að einhverjir fjármunir heimtist vegna sölu á þeim hlutbréfum sem verða þá nýttir til uppgreiðslu skulda.
 
„Það er því ljóst að Reykjanesbær er á réttri leið. Þessi árangur næst ekki af sjálfu sér og eru starfsfólki Reykjanesbæjar færðar þakkir fyrir að sveitarfélagið er að komast á þann stað að vera eitt af best reknu og sjálfbærustu sveitarfélögum á Íslandi,“ segir í bókun meirihlutans.
Public deli
Public deli