Bygg
Bygg

Fréttir

Reykjanesbær: Íbúatalan komin yfir 13800
Miðvikudagur 14. maí 2008 kl. 10:59

Reykjanesbær: Íbúatalan komin yfir 13800

Íbúum Reykjanesbæjar fjölgaði um 1328 á síðasta ári. Af þessum fjölda voru íslenskir ríkisborgarar 915 talsins og erlendir ríkisborgarar voru 413.
Fjölgað hefur alls um 500 manns á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs. Íbúatalan er nú komin yfir 13800 og nemur fjölgunin 26% á fjórum árum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjanesbæ.

Þetta var á meðal þess sem fram kom á íbúafundi í Innri-Njarðvík í gærkvöldi með Árna Sigfússyni, bæjarstjóra. Alls sóttu um 160 íbúar fundinn en honum var jafnframt hljóðvarpað á netinu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Næsti íbúafundur með bæjarstjóra verður haldinn í kvöld kl. 20:00 í Njarðvíkurskóla.

Áætlaðir eru alls sex fundir í hverfum bæjarins að þessu sinni . Á fundunum er farið yfir helstu verkefni bæjarfélagsins, rætt um aðbúnað í viðkomandi hverfum, svarað fyrirspurnum og tekið við ábendingum um það sem betur má fara í bæjarfélaginu.


Mynd/Hilmar Bragi: Frá íbúafundinum í gær.