Bygg
Bygg

Fréttir

Reykjanesbær í samstarf við Nexis um heilsueflandi samfélag
Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar og Jóhann Friðriksson, lýðheilsufræðingur hjá Nexis, skrifa undir samstarfssamning. Mynd af vef Reykjanesbæjar.
Fimmtudagur 17. nóvember 2016 kl. 06:00

Reykjanesbær í samstarf við Nexis um heilsueflandi samfélag

„Mikið og gott starf hefur verið unnið hér í Reykjanesbæ undanfarin ár og því má segja að grunnurinn sem við byggjum á sé góður. Þess vegna hef ég alla trú á því að þetta verkefni muni heppast vel en það er mikilvægt að íbúar átti sig á að þetta er þeirra verkefni og þeirra aðkoma er nauðsynleg fyrir framgang og árangur þess,“ segir Jóhann Friðriksson, lýðheilsufræðingur hjá Nexis heilsueflingu, en fyrirtækið hefur skrifað undir samning við Reykjanesbæ um verkefnastjórn verkefnisins Heilsueflandi samfélag. Frá samstarfinu er greint á vef Reykjanesbæjar.

Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri, sem undirritaði samstarfssamninginn fyrir hönd Reykjanesbæjar, skrifaði á dögunum undir samning við Embætti landlæknis  þar sem bærinn gerðist aðili að verkefninu. Stýrihópur hefur tekið til starfa en í honum sitja fulltrúar hagsmunaaðila svo sem frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja, grunn- og leikskólum, lögreglu, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, svo nokkrar séu nefndir. Ráðgert er að innleiðing á hugmyndafræði heilsueflandi samfélags og áætlunargerð í samræmi við hana hefjist fljótlega.  

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Starfsfólk Reykjanesbæjar sem kemur að framkvæmd verkefnisins, ásamt verkefnastjóra. Frá vinstri Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri, Hera Ósk Einarsdóttir, sviðsstjóri Velferðarsviðs, Jóhann Friðriksson lýðheilsufræðingur hjá Nexis, Helgi Arnarson sviðsstjóri Fræðslusviðs, Hafþór Birgisson, íþrótta- og tómstundafræðngur og Guðlaugur Helgi Sigurjónsson sviðsstjóri Umhverfissviðs. Mynd af vef Reykjanesbæjar.

 

Heilsuefling, eins og orðið ber með sér, gengur út á það að efla almenna heilsu íbúa með því að fyrirbyggja sjúkdóma, stuðla að forvörnum og veita stuðning til lífstílsbreytinga. Heilsuefling tekur meðal annars til félagslegra, andlegra og umhverfislegra áhrifaþátta heilbrigðis og fólki gert kleift að hafa aukin áhrif á heilsu sína til góðs. Heilsuefling snýst ekki síður um að hafa möguleika á að velja hollt, óháð búsetu, aldri, kyni og félagslegri stöðu.

Jóhann segir brýnast nú að koma stoðum undir verkefnið, sem áætlað er að taki um fjögur ár en mikilvægt er að tryggja að verkefnið skjóti rótum þannig að árangurinn sé varanlegur. Samstarfssamningurinn gildi í fimm mánuði og því þarf að vinna hratt. „Verkefni eins og þetta, að byggja upp heilsueflandi samfélag snýst um langtíma markmið. Lykilþættir hér eru þeir að verkþættir séu vel skilgreindir, fjármagn sé tryggt og að allir eigi hlutdeild í verkefninu.“ Jóhann leggur áherslu á að það sé mjög mikilvægt að þeir sem verði fyrir áhrifum af verkefninu verði með í að stýra ákvörðunartöku. „Ég tel Reykjanesbæ og íbúa vera vel í stakk búna til að gera þetta og ég tel okkur geta notað þetta verkefni til þess að efla andann í sveitarfélaginu, samheldnina og lífsgæðin.“ 

Samkvæmt lýðheilsuvísum Embættis landlæknis eru Suðurnes frábrugðin landsmeðaltalinu er varðar eftirtalda þætti:
 

  Hærra hlutfall fullorðinna sem hæsta gildi á hamingjukvarða.
  Hærra hlutfall barna í 10. bekk hreyfir sig samkvæmt ráðleggingum.
  Lægri tíðni ölvunardrykkju fullorðinna.
  Hlutfallslega fleiri fullorðnir meta andlega heilsu sína slæma.
  Hlutfallslega fleiri fullorðnir reykja daglega.
  Hlutfallslega færri konur mæta í leghálskrabbameinsskoðun og brjóstamyndatöku.