Reykjanesbær í 6. sæti heimsókna á vetrartíma
Ný könnun Ferðamálastofu meðal erlendra ferðamanna sem dvöldu á Íslandi á vetrartíma frá september 2011 til maí 2012 sýnir að af 35 stöðum sem spurt var sérstaklega um varðandi heimsóknir lenti Reykjanesbær í 6. sæti yfir flestar heimsóknir. Tæplega 22% svarenda sögðust hafa heimsótt Reykjanesbæ.
Þegar svarendur voru spurðir að því hvaða þrjú atriði þeim hefðu þótt minnisstæðust við Íslandsferðina nefndu flestir Bláa lónið (35,2%)
Af stöðum á landinu sögðust flestir hafa heimsótt Þingvelli, Geysi eða Gullfoss (61,0%), Vík (32,6%), Skóga (27,3%), Skaftafell (22,8%), Reykjanesbæ (21,9%), Snæfellsnes þjóðgarð (20,7%), Reykjanesvita/Gunnuhver/Brú milli heimsálfa (15,1%), Akureyri (13,7%), Hornafjörð (13,0%) Borgarfjörð (12,6%), Mývatn (11,8%) og Eyrarbakka (10,9%).
Í könnuninni kemur fram að 95% svarenda sögðust hafa gist í Reykjavík og nágrenni og var meðaldvalarlengdin fimm nætur. 6,6% svarenda sögðust hafa gist á Reykjanesi.
Ferðamálastofa segir könnunina byggða á að netföngum var safnað með skipulögðum hætti á komu- og brottfararsvæði flugstöðvar Leifs Eiríkssonar á tímabilinu 1. september 2011 til 31. maí 2012. Úrtakið var 4.512 manns og var svarhlutfallið 52,6%