Reykjanesbær fjölgar smáhúsum
Áætlað er að byggja smáhús í Reykjanesbæ fyrir einstaklinga sem eru með fjölþættar þjónustuþarfir og eru án heimilis. Horft er til þess að smáhúsin nýtist þeim sem eru í brýnni þörf fyrir úrlausn í húsnæðismálum og eru ekki færir um að leysa úr sínum málum sjálfir. Tekið hefur verið mið af reynslu Reykjavíkurborgar af sambærilegu starfi, en borgin hefur unnið með skipulögðum hætti að svipuðum búsetumöguleikum. Þetta kemur fram á vef Reykjanesbæjar.
Samþykkt hefur verið að leggja til fé í verkefnið og er vinna hafin við að fjölga smáhúsum í Reykjanesbæ. Áætlað er að húsin verði um 25-30 fermetrar og taki mið af einstaklingsbúsetu. Lagt er upp með að þau verði smekkleg og falli vel að nærumhverfinu. Tvær staðsetningar eru til skoðunar, önnur við Hákotstanga í Innri-Njarðvík og hin við Gróf í Keflavík. Ef áætlanir ganga eftir munu fyrstu íbúarnir geta flutt inn við lok árs.
Smáhús eru öruggt húsnæði fyrir einstaklinga með vímuefna- og geðvanda, allan sólarhringinn. Tvö smáhús eru nú þegar í útleigu fyrir íbúa Reykjanesbæjar og hafa nýst þeim íbúum vel. Nauðsynlegt er að byggja fleiri smáhús og fara í markvisst starf með stefnu í þjónustu við einstaklinga með miklar og flóknar þjónustuþarfir. Með áætlaðri aukningu mætir sveitarfélagið íbúum sem eru í ríkri þörf fyrir sérhæfðan stuðning. Mikilvægt er að smáhúsin séu í nálægð við almenningssamgöngur og aðra nauðsynlega þjónustu, líkt og matvöruverslun, apótek og heilbrigðisþjónustu. Með tilkomu smáhúsanna er húsnæðiskostum sem standa heimilislausu fólki fjölgað.
Smáhúsin eru heimili fólks og er íbúum þeirra veitt þjónusta sem byggir á hugmyndafræði Húsnæði fyrst sem snýst um að fólk eigi rétt á húsnæði og geti haldið því með einstaklingsbundinni þjónustu undir formerkjum skaðaminnkunar.
„Þetta er gríðarlega mikilvægt því öruggt húsnæði er oft fyrsta skrefið til þess að geta unnið að bættum lífsskilyrðum fólks. Húsnæði fyrst stefnan hefur skilað miklum árangri og dregið úr langtímaheimilisleysi víða um heim. Þjónustan leiðir til aukinna lífsgæða þjónustuþega og aðstandenda þeirra.“ segir Hera Ósk Einarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjanesbæjar í fréttinni á vef bæjarins.
Með þessu vinnur Reykjanesbær að því að auka lífsgæði íbúa og stuðla að jöfnum tækifærum þeirra til heilbrigðs lífs og vellíðanar. Velferðarráð Reykjanesbæjar hvetur til samkenndar og mannúðlegrar nálgunar um verkefnið og óskar þess að bæjarbúar nálgist umræðuna af nærgætni.