Reykjanesbær fjármagnar tvo fimmtu kaupverðs Magma
Reykjanesbær fjármagnar um tvo fimmtu kaupverðs Magma Energy á 52,3% hlut í HS Orku, samkvæmt frétt Morgunblaðsins í morgun. Magma ræður nú yfir 98,53% hlutafjár í HS.
Þegar Geysir Green Energy (GGE) keypti stóran hlut af Reykjanesbæ á síðasta ári veitti sveitarfélagið 6,3 milljarða seljendalán til fyrirtækisins. Magma Energy tekur nú yfir þetta sama skuldabréf, en það er tryggt með veði í hlutabréfum í HS, segir í frétt MBL.
Af þeim 16 milljörðum sem Magma greiðir GGE fyrir 52,13% eru því um 6,5 milljarðar í reiðufé, 6,3 milljarðar í formi yfirtöku skuldabréfsins og líklegt er að afgangurinn verði í formi hlutabréfa í kanadísku móðurfélagi Magma Energy.
Nánar er fjallað um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.
---
VFmynd/elg - Fulltrúar Magma Energy og GGE héldu kynningarfund í gær vegna viðskiptanna með HS Orku. Fyrir miðju er Ross J. Beaty, eigandi Magma.