Reykjanesbær fargar jólatrjám fyrir íbúa
Eins og undanfarin ár býður Umhverfismiðstöð Reykjanesbæjar upp á hirðingu jólatrjáa frá íbúum og kemur til förgunar. Íbúar þurfa að koma trénu fyrir utanhúss á sýnilegum stað vilji þeir nýta þjónustuna.
Hringja þarf í síma 420 3200 og óska eftir þjónustunni, sem verður á boðstólnum dagana 8. - 12. janúar.
Umhverfismiðstöð Reykjanesbæjar er opin kl. 07:00 - 16:00 mánudaga til fimmtudaga og kl. 07:00 - 12:30 föstudaga.