REYKJANESBÆR FÁI NEÐRA-NIKKELSVÆÐIÐ
Á bæjarstjórnarfundi Reykjanesbæjar þann 16. ágúst sté Böðvar Jónsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, í pontu og eftir að hafa hrósað bæjarstjórn og bæjarbúum fyrir gott starf í umhverfismálum en enn væri eitt svæði sem væri lýti á bæjarfélaginu, neðra-Nikkelsvæðið. Lagði hann fram eftirfarandi bókun. „Undirritaður skroar á Varnarmáladeild utnaríkisráðuneytisins og utanríkisráðherra að leggja aukna áherslu á samninga við Varnarliðið um skil á svokölluðu neðra-Nikkelsvæði, þannig að Reykjanesbær fái það til umráða og afnota sem allra fyrst. Svæðið hefur nú þegar haft veruleg áhrif á skipulags- og byggingarmál og tafið fyrir eðlilegri og nauðsynlegri uppbyggingu Reykjanesbæjar. Þar til samningar nást er þess krafist að ásjóna mannvirkja sem á svæðinu eru sé með viðundandi hætti. Ryðgaðir tankar, illa hritir skúrar og ónýt víggirðing eru lýti á bænum og umráðaraðila til lítils sóma. Úrbóta er þörf - strax.“ Jón Geirdal, bæjarfulltrúi Jafnaðar- og félagshyggjufólks, tók undir innihald bókunar Böðvars og óskaði þess að bókunin yrði bæjarstjórnar allrar, þannig hlyti hún að fá aukið vægi hjá Varnarmáladeild en Böðvar kaus að eiga bókunina einn.