Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Miðvikudagur 16. október 2002 kl. 18:35

Reykjanesbær fær 10 milljónir kr. frá EBÍ

Stjórn Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands hefur ákveðið að greiða samtals 150 milljónir króna í framlag til ágóðahlutar í ár. Greiðslan rennur til þeirra sveitarfélaga sem aðild eiga að Sameignarsjóði EBÍ í réttu hlutfalli við eignaraðild þeirra að sjóðnum. Aðildarsveitarfélögin eru 81 og fær Reykjanesbær rúmar 10 milljónir króna.Akureyri fær hæstu greiðsluna, eða rúmar 16 milljónir króna. Til Kópavogs renna tæpar þrettán milljónir, rúmlega sjö milljónir og Vestmannaeyjabær rúmar sex milljónir. Í samræmi við samþykktir félagsins mælast stjórn og fulltrúaráð EBÍ til þess við sveitarfélögin að þau verji framlaginu meðal annars til forvarna, greiðslu iðgjalda af tryggingum sveitarstjórna og brunavarna í sveitarfélaginu.

Í samræmi við samþykktir félagsins mælast stjórn og fulltrúaráð EBÍ til þess við sveitarfélögin að þau verji framlaginu meðal annars til forvarna, greiðslu iðgjalda af tryggingum sveitarstjórna og brunavarna í sveitarfélaginu.
Ágóðahlutur aðildarsveitarfélaganna frá EBÍ hefur m.a. orðið til þess að nokkur sveitarfélög hafa endurnýjað slökkvibifreiðar sínar svo og annan slökkvibúnað.

EBÍ hefur um langt skeið greitt aðildarsveitarfélögum framlag til ágóðahlutar af starfsemi
sinni. Slíkar greiðslur hófust árið 1934 með samningi Brunabótafélags Íslands við sveitarfélög um fjármögnun slökkvitækja. Árið 1955 var gefin út sérstök reglugerð um þessar greiðslur, og aftur árið 1985. Á síðustu fimm árum hafa aðildarsveitarfélögin fengið samtals greiddar um 680 milljónir króna í ágóðahlut. Frá upphafi hefur EBÍ því greitt hundruðir milljóna króna til aðildarsveitarfélaga, miðað við verðlag í dag.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024