Reykjanesbær endurbætir reykjanesbaer.is
Endurbættur vefur Reykjanesbæjar www.reykjanesbaer.is er komin í gagnið. Vefnum er ætlað að auka við vefþjónustu Reykjanesbæjar. Nú er boðið uppá fjölbreytta leitarmöguleika og ítarleit í flestum málaflokkum. Stefnumótun og framtíðarsýn Reykjanesbæjar er dregin fram .
Árni Sigfússon, bæjarstjóri ætlar að skrifa pistla á vefinn, um bæjarmál, eftir ýmsum málaflokkum. Einnig er hægt að panta viðtalstíma við bæjarstjóra á vefnum og skoða upplýsingar af árlegum íbúafundum.
Hægt er að velja viðmót vefsins á ensku og pólsku og á sú tungumálaþjónusta eftir að aukast enn frekar.