Bygg
Bygg

Fréttir

Reykjanesbær býður kvikmyndagerðarfólk velkomið
Miðvikudagur 22. júní 2005 kl. 10:59

Reykjanesbær býður kvikmyndagerðarfólk velkomið

Reykjanesbær tekur kvikmyndagerðarfólki, sem er að hefja undirbúning að tökum á stórmyndinni Flags of our Fathers, fagnandi og býður það velkomið til bæjarins. Fyrstu starfsmenn kvikmyndatökuliðsins komu til Reykjanesbæjar í gær til að undirbúa upptökur í Stóru Sandvík í Reykjanesbæ og í Krýsuvík, sem er í landi Hafnarfjarðar.
Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, sagði í samtali við Víkurfréttir að Reykjanesbær muni veita framleiðendum stórmyndarinnar alla þá aðstöðu sem þeir óska og aðstoð við undirbúning á tökum myndarinnar í Stóru Sandvík. Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar samþykkti í morgun að kvikmyndataka gæti farið fram í Stóru Sandvík.
Umsvif kvikmyndatökuliðsins í Reykjanesbæ verða mikil, en gert er ráð fyrir að hundruð manna komi að undirbúningi og tökum myndarinnar, sem er í leikstjórn hins heimskunna leikara og leikstjóra Clint Eastwood. Framleiðandi er Steven Spielberg, sem er ekki síður þekktur en leikstjórinn. Stór hópur mun gista í Reykjanesbæ og heimamenn munu taka þátt í verkefninu á hinum ýmsu stigum.
Íbúar í Höfnum munu verða áþreifanlega varir við aukna umferð vegna verkefnisins. Bæjarstjóri biður þá afsökunar á ónæðinu en biður jafnframt bæjarbúa að taka vel á móti kvikmyndagerðarfólkinu og öðru starfsliði sem vinnur að undirbúningi stórmyndarinnar. Gert er ráð fyrir að vinna við myndina hér á landi taki um þrjá mánuði en kvikmyndin verður frumsýnd á næsta ári.
Bílakjarninn
Bílakjarninn