Bygg
Bygg

Fréttir

Reykjanesbær býður foreldrum leikskólabarna á uppeldisnámskeið
Kristín Helgadóttir leikskólafulltrúi Reykjanesbæjar og Einar Trausti Einarsson, yfirsálfræðingur Reykjanesbæjar. VF-mynd/dagnyhulda
Mánudagur 3. október 2016 kl. 06:00

Reykjanesbær býður foreldrum leikskólabarna á uppeldisnámskeið

Foreldrum allra tveggja ára barna í Reykjanesbæ verður í vetur boðið að taka þátt í námskeiðinu Uppeldi sem virkar - færni til framtíðar. Á námskeiðinu er meðal annars lögð áhersla á að kenna foreldrum leiðir til að vera samtaka í uppeldinu og skapa æskileg uppeldisskilyrði og ýta undir þá hegðun sem foreldrar vilja sjá í fari barna sinna. Að sögn Kristínar Helgadóttur, leikskólafulltrúa Reykjanesbæjar, hafa þegar verið haldin tvö námskeið á haustönn sem voru vel sótt. „Foreldrar hafa verið mjög áhugasamir og hafa gaman af því að ræða um uppeldismál. Þetta er verkefni sem við erum afar stolt af að standa fyrir og teljum að það muni gagnast foreldrum vel,“ segir hún.

Námskeiðið er í fjögur skipti, tvær klukkustundir í senn og er hægt að velja um síðdegis- eða kvöldnámskeið. Sams konar námskeið hafa um árabil verið haldin á vegum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og gefið góða raun. Námskeiðið byggir meðal annars á bókinni Uppeldisbókin - Að byggja upp færni til framtíðar. Höfundar bókarinnar eru bandarískir barnasálfræðingar með langa reynslu af uppeldisfræðslu og vinnu með foreldrum og börnum. Gyða Haraldsdóttir, doktor í sálfræði og Lone Jensen þroskaþjálfi eru höfundar námskeiðsins og hafa lagað það að íslenskum veruleika. Að sögn Einars Trausta Einarssonar, yfirsálfræðings hjá Reykjanesbæ, er námskeiðið fyrir alla sem vilja styrkja sig í foreldrahlutverkinu og leggja áherslu á jákvæðar og árangursríkar uppeldisaðferðir. „Á °ámskeiðinu er lögð er mikil áhersla á að „grípa börnin góð“ og með því er átt við að taka markvisst eftir og veita þeim athygli þegar þau sýna æskilega hegðun.“ Þá segir hann að rannsóknir á árangri af námskeiðinu í Reykjavík sýni vísbendingar um að foreldrar sem hafa farið í gegnum það séu líklegri en áður til að gefa skýr fyrirmæli, vera samtaka í uppeldinu og finnst mikilvægara að vera góð fyrirmynd fyrir börn sín. „Þá hrósa foreldrar oftar fyrir góða hegðun eftir námskeiðið, segja frá meiri ánægju í parasambandi og finna fyrir minni streitu á heimili. Það er því ýmiss góður ávinningur af því að ljúka námskeiðinu,“ segir Einar Trausti.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Unnið er að innleiðingu námsefnisins í  leikskóla Reykjanesbæjar, þar sem starfsmenn læra að nýta aðferðirnar við dagleg störf. Einar og Kristín segja mikilvægt að skapa samræmi í uppeldisaðferðum á heimili og í leikskóla. Eins og áður sagði er sérstaklega reynt að ná til foreldra tveggja ára barna en að sögn Kristínar og Einars eru allir foreldrar leikskólabarna velkomnir. Lýðheilsusjóður hefur styrkt námskeiðið og því er kostnaður fyrir foreldra minni en ella. Ömmur og afar eru einnig velkomin á námskeiðið. Á námskeiðunum fær fólk námskeiðsgögn, auk þess sem Uppeldisbókin er til sölu. Nánari upplýsingar má nálgast á vef Reykjanesbæjar http://www.reykjanesbaer.is/thjonusta/menntun-og-fraedsla/leikskolar/ eða með því að hafa samband við Kristínu á netfanginu [email protected].