Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Reykjanesbær býðst til að taka yfir rekstur Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja
Fimmtudagur 8. janúar 2009 kl. 10:29

Reykjanesbær býðst til að taka yfir rekstur Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja



Eftirfarandi tillaga var samþykkt í Bæjarráði Reykjanesbæjar í morgun:

„Reykjanesbær óskar eftir viðræðum við Heilbrigðisráðuneytið um að sveitarfélagið taki yfir starfsemi Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja (HSS). Mikilvægt er að tryggja að þær breytingar sem boðaðar hafa verið af Heilbrigðisráðuneytinu um skipulag heilbrigðisþjónustu, tryggi góða og örugga þjónustu fyrir íbúa á starfssvæði HSS auk þess sem að atvinnutækifærum fjölgi.
Til að tryggja áframhaldandi gæði í starfsemi sjúkrahúss, heilsugæslu og skurðstofu og aukin tækifæri á sviði þjónustunnar, er mikilvægt að tryggja skýra stefnu til framtíðar og fylgja henni fast eftir með framkvæmd. Reykjanesbær býðst til að hafa forgöngu um það“

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Heilbrigðisráðuneytið hefur þegar samþykkt að funda í byrjun febrúar til þess að ræða hugmyndir um gerð þjónustusamnings við sveitarfélagið um rekstur heilbrigðisþjónustu.