Reykjanesbær boðar til framkvæmdarþings
Reykjanesbær boðar til framkvæmdaþings í Hljómahöll mánudaginn 9. apríl kl. 15:00 - 18:00. Þingið er ætlað öllum þeim sem hafa áhuga á svæðinu, bæði fagmönnum og íbúum. Helstu framkvæmdir komandi mánaða verða kynntar og málin rædd.
Frummælendur koma frá nokkrum af stærstu framkvæmdaaðilum og stórfyrirtækjum á svæðinu og er aðgangur er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá sig á fundinn, hér er hægt að skrá sig.