Reykjanesbær 30 ára í dag
Í dag eru 30 ár frá því að Reykjanesbær varð til við sameiningu Keflavíkur, Njarðvíkur og Hafna. Blásið verður til veislu í sveitarfélaginu af því tilefni sem hefst á afmælisdaginn sjálfan þriðjudaginn 11. júní og stendur fram á þjóðhátíðardaginn 17. júní.
Íbúar eru hvattir til að fagna þessum áfanga og taka þátt í þeim viðburðum sem verða á dagskrá í afmælisvikunni.
Reykjanesbær hefur opnað sérstaka viðburðasíðu þar sem nálgast má þá dagskrá sem er í gangi vegna afmælisins.
Frítt í sund, strætó og á söfnin alla afmælisvikuna 11.-17. júní.