HSS
HSS

Fréttir

Reykjanesbær: 160 milljónir í afgang
Fimmtudagur 10. nóvember 2005 kl. 13:29

Reykjanesbær: 160 milljónir í afgang

Í morgun var samþykkt, í bæjarráði Reykjanesbæjar, endurskoðuð fjárhagsáætlun fyrir árið 2005. Áætluð niðurstaða samstæðu er jákvæð um tæpar 160 milljónir en var 71 milljón í fyrri áætlun.

Ráð er gert fyrir viðsnúningi á rekstrarniðurstöðu bæjarsjóðs úr rúmlega 30 milljóna halla í 10 milljón króna jákvæða rekstrarniðurstöðu.

Á vef Reykjanesbæjar segir að tekjur hafi aukist umfram kostnað og þar m.a. tekið til fjölgunar íbúa á svæðinu. Útlit sé fyrir að fjármunatekjur verði einnig hærri en áætlað var, arður af eignarhlutum, verðbótatekjum og gengismunur.
Bílakjarninn
Bílakjarninn